United ákvað að selja hinn stórefnilega Morrison Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2012 23:31 Ravel Morrison í leik með United. Nordic Photos / Getty Images
Ravel Morrison, átján ára miðvallarleikmaður, gekk í dag í raðir West Ham frá Manchester United. Því hefur verið haldið fram að hann sé einn efnilegasti leikmaður landsins en hann hefur þó átt í talsverðum erfiðleikum utan knattspyrnuvallarins undanfarin ár. Morrison samdi við West Ham til 2015 en samkvæmt heimildum BBC eru engin sérstök ákvæði í samningnum um að United hafi rétt á að kaupa hann til baka eftir ákveðinn tíma. Það virðist því sem svo að Alex Ferguson hafi ákveðið að rjúfa öll tengsl við Morrison sem hefur verið sagður hinn næsti Paul Scholes. Samningur hans við United átti að renna út í sumar og höfðu samningaviðræður gengið illa. Sagði Ferguson að kröfur Morrison væru óraunhæfar. Morrison hefur lent í ýmsum vandræðum í sínu einkalífi og nokkrum sinnum verið dreginn fyrir rétt fyrir hin ýmsu lögbrot. Hann hefur þó hingað til sloppið við fangelsisvist, þó svo að hann hafi verið í eitt ár á skilorði. „Ég er mjög ánægður með skiptin," sagði Morrison á heimasíðu West Ham. „Þetta gerðist allt mjög fljótt og ég hlakka til að komast vonandi sem allra fyrst upp í ensku úrvalsdeildina með West Ham."
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira