Liverpool flaug áfram í bikarnum | Brighton gerði þrjú sjálfsmörk 19. febrúar 2012 16:00
Liverpool er komið áfram í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir þægilegan sigur á Brighton, 6-1, á Anfield í dag. Liverpool mætir því Stoke á heimavelli í 8-liða úrslitunum. Liverpool fékk draumabyrjun í dag og komust yfir strax í upphafi leiksins þegar Martin Skrtel skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu á fimmtu mínútu. Brighton komu sterkir til baka eftir markið og það tók þá um tuttugu mínútur að jafna leikinn. Lua Lua gerði sér lítið fyrir og þrumaði boltanum í netið beint úr aukaspyrnu. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins urðu Brighton menn fyrir því óláni að skora sjálfsmark og því var staðan 2-1 í hálfleik. Liverpool fór langt með leikinn eftir tæplega korters leik í síðari hálfleik þegar Andy Carrol skoraði virkilega flott mark eftir fyrirgjöf frá Stewart Downing. Virkilega vel gert hjá Carrol sem setti boltann óverjandi í netið. Tuttugu mínútum fyrir leikslok skoraði Bridcutt, leikmaður Brighton, sitt annað sjálfsmark í leiknum og staðan því orðin 4-1 fyrir Liverpool og leikurinn búinn. Það ótrúlega gerðist síðan fjórum mínútum síðar þegar Brighton gerði sitt þriðja sjálfsmark í leiknum en þá setti Dunk boltann í sitt eigið net á ótrúlega klaufalega hátt, 5-1 fyrir Liverpool en leikmenn Brighton höfðu skorað meirihlutann af mörkum leiksins. Liverpool fékk síðan dæmda vítaspyrnu tíu mínútum fyrir leikslok en Luis Suárez lét verja spyrnuna frá sér. Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool, fyrirskipaði frá hliðarlínunni að Suárez skildi taka spyrnuna, en það gekk ekki upp að þessu sinni. Luis Suárez bætti samt sem áður fyrir klúðrið nokkrum mínútum síðar þegar hann skallaði boltann í netið og staðan orðin 6-1. Algjör niðurlæging Brighton staðreynd.
Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Tottenham - Newcastle | Bæði lið leitast eftir fyrsta sigrinum Enski boltinn Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Tottenham - Newcastle | Bæði lið leitast eftir fyrsta sigrinum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Sjá meira