Lampard dreymir um að verða knattspyrnustjóri Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2012 17:15 Frank Lampard. Mynd/Nordic Photos/Getty
Chelsea-goðsögnin Frank Lampard er þegar farinn að huga að lífinu eftir að skórnir fara upp á hillu en það lítur út fyrir að Lampard verði áfram viðloðandi fótboltann. Lampard hefur verið hjá Chelsea síðan 2001 og dreymir um að fara í fótsport manna eins og Ruud Gullit, Gianluca Vialli og Roberto Di Matteo sem allt urðu knattspyrnustjórar hjá Chelsea eftir að hafa spilað fyrir félagið. Lampard er orðinn 34 ára gamall og á því ekki mörg ár eftir inn á vellinum. Hann er þegar farinn að safna sér þjálfararéttundum en viðurkennir þó að í raun komi bara eitt félag til greina. „Ég veit að ég get aldrei búist við því að labba inn og setjast í stjórastólinn hjá Chelsea en þetta er samt eina fótboltafélagið sem ég hef áhuga á að stýra," sagði Frank Lampard í viðtali við The Sun. „Ég er farinn að hugsa að safna mér þjálfararéttindum en þótt ég hljómi kannski sjálfselskur þá vil ég ekki frumsýna mig hjá minna félagi. Það væri gaman að fá að reyna sig hjá Chelsea en ég vil samt gera það vel," sagði Lampard. Lampard hefur spilað fyrir þekkta stjóra eins og þá Claudio Ranieri, Jose Mourinho, Luiz Felipe Scolari, Guus Hiddink og Andre Villas-Boas. Hann ætti því að geta notfært sér það í framtíðinni. „Ég hef lært margt af þeim en ég myndi líka gera margt öðruvísi. Það mikilvægasta sem ég hef lært er að umgangast fólk á réttan hátt. Það er mikilvægt að bera virðingu fyrir leikmönnum og vinna sér inn virðingu þeirra til baka," sagði Lampard.
Mest lesið Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Brighton - Aston Villa | Algjört hrun í fyrsta leik Aston Villa Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Sjá meira