Lucas verður frá í tvo til þrjá mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2012 14:45 Lucas Leiva og Brendan Rodgers. Mynd/Nordic Photos/Getty
Liverpool varð fyrir áfalli í dag þegar kom í ljós að brasilíski miðjumaðurinn Lucas Leiva verður frá keppni í tvo til þrjá mánuði vegna tognunar aftan í læri. Brendan Rodgers staðfesti þetta við fjölmiðla í dag. „Það er leiðinlegt því hann er búinn að leggja mikið á sig að koma til baka. Þetta eru mjög sérstök meiðsli því hann tognaði mjög ofarlega á lærinu. Hann er búinn að fara í myndatöku og við hittum sérfræðing á eftir. Við þurfum að komast að því hvort hann þurfi að fara í aðgerð," sagði Brendan Rodgers, stjóri Liverpool. Lucas Leiva sleit krossband í byrjun síðasta tímabils en var kominn á fullt fyrir þetta tímabil. Hann fór meiddur af velli eftir aðeins fimm mínútur á móti Manchester City á sunnudaginn. „Það eru engin orð sem geta lýst tilfinningum mínum á þessari stundu. Það er erfitt að halda sér jákvæðum en ég er viss um að betri dagar bíði mín. YNWA," skrifaði Lucas Leiva inn á twitter-síðu sína.
Mest lesið Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Handbolti Ræddi metið við son Tryggva: „Myndi skipta mig miklu máli að ná þessu meti“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Fram 1-2 | Endurkomusigur hjá Fram Íslenski boltinn Upgjörið: Vestri - KA 1-0 | Vestri á Ísafirði er alltaf Vestri Íslenski boltinn Segja Andra Lucas til sölu Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 0-2 | Blikar ekki í vandræðum í Eyjum Íslenski boltinn „Mjög ryðguð en furðu fljótt fór rykið af mér“ Íslenski boltinn Markalaus en öruggur opnunarleikur í Miami Fótbolti Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Enski boltinn Í beinni: Afturelding - ÍA | Botnslagur í Mosó Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Draumur Cunha rættist Grealish fer ekki með á HM félagsliða Liverpool að landa dýrasta leikmanni í sögu deildarinnar City staðfestir kaupin á Reijnders Sendi sónarmynd: Tvö ákærð eftir fjárkúgun gamallar kærustu Vilja tæpa tólf milljarða fyrir Garnacho Arftaki hins titlaóða Carsons fundinn Man City staðfestir kaupin á Cherki Forest vill niðurstöðu í mál Palace Man City ræður annan úr teymi Klopp hjá Liverpool Chelsea vill Gittens áður en glugginn lokar Allt klárt og Frank verður næsti stjóri Tottenham Aït-Nouri fyrstur inn um dyrnar hjá Man City Segja Man United hafa sett í samband við Sporting vegna framherjans eftirsótta Sjá meira