Hazard lagði upp þrjú í 4-2 sigri Chelsea á Reading Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. ágúst 2012 16:52 Branislav Ivanovic skorar hér fjórða markið eftir sendingu frá Edin Hazard. Mynd/Nordic Photos/Getty
Spánverjinn Fernando Torres opnaði markareikning sinn í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og Eden Hazard lagði upp þrjú mörk Chelsea vann 4-2 sigur á nýliðum Reading á Stamford Bridge í kvöld. Reading komst yfir með tveimur mörkum á fjögurra mínútna kafla í fyrri hálfleik en varð á endanum að sætta sig við tap. Chelsea er með fullt hús á toppi deildarinnar því liðið vann 2-0 sigur á Wigan í fyrstu umferðinni um síðustu helgi. Leiknum í kvöld var flýtt vegna þátttöku Chelsea-liðsins í Ofurbikar UEFA þar sem mætast sigurvegarar í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni. Eden Hazard bjó til þrjú mörk Chelsea í leiknum og hefur því skapað fimm mörk fyrir félaga sína í fyrstu tveimur leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Fernando Torres hélt þarna upp á 150. leikinn sinn í ensku úrvalsdeildinni með marki en hann er nú búinn að skora 73 mörk í þessum 150 leikjum sínum í deild þeirra bestu. Chelsea byrjaði leikinn vel. Eden Hazard fiskaði sitt annað víti í jafnmörgum leikjum á 19. mínútu og Frank Lampard skoraði örugglega alveg eins og á móti Wigan um síðustu helgi. Einhverjir hefði búist við að róðurinn yrði þungur fyrir nýliðana í Reading eftir að hafa lent undir svona snemma en raunin varð önnur. Rússinn Pavel Pogrebnyak jafnaði með frábærum skalla á 25. mínútu eftir fyrirgjöf frá Garath McCleary og aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Danny Guthrie beint úr aukaspyrnu. Petr Cech, markvörður Chelsea, gat lítið gert við fyrra markinu en gerði aftur á móti stór mistök í því síðara þegar skotið úr aukaspyrnunni virtist hættulaust og beint á hann. Eden Hazard heldur áfram að leggja upp mörk fyrir Chelsea því á 69. mínútu fann hann miðvörðinn Gary Cahill sem lét vaða af 30 metra færi og boltinn fór í markið. Adam Federici, markvörður Reading, átti eins og Cech í fyrri hálfleiknum að gera mun betur. Fernando Torres kom Chelsea í 3-2 á 81. mínútu með skoti í tómt markið af stuttu færi eftir sendingu frá Ashley Cole. Chelsea-menn sundurspiluðu þarna vörn Reading en það var svolítil rangstöðulykt af markinu. Eden Hazard sýndi síðan mikla óeigingirni í uppbótartímanum þegar Adam Federici, markvörður Reading, var kominn fram til þess að freista þess að jafna. Chelsea náði boltanum, Hazard keyrði upp allan völlinn og gaf hann síðan á Branislav Ivanovic sem skoraði í tómt markið.
Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira