Liverpool komið áfram í enska bikarnum - vann Oldham 5-1 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2012 19:30 Jonjo Shelvey og Craig Bellamy lögðu upp mark fyrir hvorn annan í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Liverpool varð fyrsta liðið til þess að komast áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 5-1 sigur á C-deildarliðið Oldham Athletic á Anfield í kvöld. Oldham komst yfir í leiknum en sigur Livepool var ekki í mikilli hættu í seinni hálfleiknum. Craig Bellamy og Jonjo Shelvey voru báðir með mark og stoðsendingu í kvöld en þriðja markið skoraði fyrirliðinn Steven Gerrard í sínum fyrsta leik í byrjunarliðinu eftir að hann snéri til baka eftir meiðsli. Andy Carroll skoraði síðan fjórða markið og opnaði markareikning sinn á Anfield á leiktíðinni og lokamarkið gerði síðan Stewart Dwning en þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið. Oldham var þrisvar sinnum nálægt því að skora á fyrstu 22 mínútum leiksins en markið kom loksins á 28. mínútu þegar Robbie Simpson skoraði með glæsilegu langskoti. Það tók Liverpool hinsvegar aðeins 66 sekúndur að jafna metin. Jonjo Shelvey átti þá skot sem fór í Craig Bellamy og þaðan fór boltinn óverjandi í markið. Maxi Rodriguez fiskaði síðan ódýra vítaspyrnu á 44. mínútu og Steven Gerrard skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni í slána og inn. Gerrard byrjaði leikinn ekki vel en óx ásmegin eftir því sem leið á hálfleikinn. Craig Bellamy átti mjög góðan leik í kvöld og hann þakkaði fyrir þjónustuna frá Shelvey í fyrri hálfleik með því að leggja upp þriðja markið fyrir Jonjo Shelvey á 68. mínútu. Andy Carroll og Stewart Downing komu báðir inn á sem varamenn í lokin og innsigluðu sigurinn. Carroll skoraði markið með þrumuskoti af 20 metra færi, sitt fyrsta mark á Anfield á tímabilinu og Stewart Downing átti lokaorðið þegar hann fylgdi á eftir skoti Jon Flanagan. Downing hafði ekki skorað fyrir Liverpool og fengið mikla gagnrýni fyrir það. Liverpool komst þannig áfram í 4. umferð í fyrsta sinn síðan 2009 en liðið datt út fyrir Manchester United í 3. umferð í fyrra og fyrir Reading á sama tíma árið á undan.
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira