Lygileg endurkoma hjá Henry | Tryggði Arsenal 1-0 sigur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2012 14:15 Thierry Henry. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það var söguleg stund á Emirates-vellinum í Lundúnum í kvöld þegar að Thierry Henry tryggði Arsenal 1-0 sigur á Leeds í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar. Henry er nýgenginn til liðs við Arsenal á ný en hann er lánsmaður frá New York Red Bulls. Hann lék síðast með Arsenal árið 2007 og er markahæsti leikmaður í sögu félagsins. Nýverið var reist stytta af honum fyrir utan leikvanginn. Hann kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik í kvöld og tók sér aðeins tíu mínútur til að skora markið með hnitmiðuðu skoti í vítateignum eftir góða sendingu frá Alex Song. Henry fagnaði markinu vel og innilega og stuðningsmenn Arsenal gengu nánast af göflunum af fögnuði. Það er skiljanlegt enda Henry goðsögn í þeirra augum og atburðir kvöldsins eins og úr Hollywood-kvikmynd. Hann var svo hylltur vel og lengi eftir leik af stuðningsmönnum Arsenal og reyndar Leeds líka. Það var greinilega ekki annað hægt en að hrífast með. Leikurinn hafði annars verið tíðindalítill en Mikael Forssell komst svo reyndar nálægt því að jafna metin fyrir Leeds seint í leiknum.
Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira