Robin van Persie gæti fengið risasamning hjá Arsenal 21. febrúar 2012 10:15 Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal eru með það efst á forgangslistanum að semja á ný við Robin van Persie. Getty Images / Nordic Photos
Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal eru með það efst á forgangslistanum að semja á ný við Robin van Persie. Hollenski landsliðsframherjinn hefur verið langbesti leikmaður liðsins undanfarin misseri en afleitt gengi Arsenal hefur orðið til þess að leikmaðurinn er sagður á leið frá félaginu. Samkvæmt enskum fjölmiðlum ætlar leikmaðurinn að bíða með samningsviðræður við Arsenal þar til að keppnistímabilinu er lokið. Stjórn Arsenal hefur óskað eftir því að ræða framtíð fyrirliðans á allra næstu vikum. Samkvæmt heimildum Sportsmail ætlar Arsenal að bjóða leikmanninum fjögurra ára samning þar sem hann fengi um 90.000 pund á viku eða sem nemur 17,5 milljónum kr. Heildavirði samningsins er um 18 milljónir punda eða sem nemur 3,5 milljörðum kr. Allt bendir til þess að Robin van Persie ætli sér að sjá hvort Arsenal tryggi sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Ef félagið nær því markmiði eru miklar líkur á því að Arsenal kaupi leikmenn fyrir allt að 11-12 milljarða kr. næsta sumar. Samningur Robin van Persie rennur út í lok næstu leiktíðar. Ef hann vill ekki framlengja við Arsenal eru líkur á því að hann verði seldur næsta sumar.
Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Tottenham - Newcastle | Bæði lið leitast eftir fyrsta sigrinum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Sjá meira