Enski boltinn

Clarke hættur hjá Liverpool | Orðaður við West Brom

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Clarke á æfingasvæðinu hjá Liverpool.
Clarke á æfingasvæðinu hjá Liverpool. Nordicphotos/Getty
Steve Clarke, sem hætti í gær yfirgaf þjálfarateymi enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, er sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá West Brom.

Clarke, sem er frá Skotlandi, var aðstoðarmaður landa síns Kenny Dalglish á meðan hann stýrði Liverpool. Áður aðstoðaði hann Gianfranco Zola hjá Chelsea en var þar áður í þjálfarateymi Chelsea sem hann spilaði með á sínum tíma.

Fjölmargir hafa verið orðaðir við stjórastöðuna hjá West Brom undanfarnar vikur síðan Roy Hodgson tók við sem þjálfari enska landsliðsins. Síðast var Ralf Rangnick, fyrrum stjóri Schalke, orðaður við liðið en nú er Clarke kominn inn í myndina.

Fróðlegt verður að sjá hvort Clarke fylli í skarð Hodgson í annað skiptið á skömmum tíma. Dalglish og Clarke tóku nefnilega við liði Liverpool eftir að Hodgson fékk að taka pokann sinn á Anfield.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×