Verður fyrsti leikur Tevez á móti Chelsea? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2012 17:00 Carlos Tevez mætir brosani á æfingar City þessa dagana. Mynd/Nordic Photos/Getty
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, útilokaði það ekki á blaðamannafundi í dag að Carlos Tevez myndi spila sinn fyrsta leik í síðan í september, þegar Manchester City mætir Chelsea í næstu viku. Carlos Tevez hefur ekki spilað með liðinu frá því í deildarbikarleik á móti Birmingham 21. september síðastliðinn en allt fór upp í háaloft á milli hans og Mancini þegar Tevez neitaði að hita upp í Meistaradeildarleik á móti Bayern Munchen í lok september. Tevez hefur spilað tvo varaliðsleiki með City síðan að hann snéri aftur eftir sjálfskipaða útlegð í Argentínu. Hann braut ísinn með því að biðja félagið og stuðningsmenn þess afsökunar á hegðun sinni. En ætlar Mancini að nota hann á móti Chelsea? „Við munum sjá til í næstu viku en þetta fer allt eftir Carlos sjálfum," sagði Roberto Mancini. Tevez hefur ekki skorað fyrir Manchester City á þessu tímabili en skoraði 44 mörk í 69 deildarleikjum tímabilin á undan. Manchester City mætir Chelsea eftir viku en liðið mætir Sporting Lissabon annað kvöld í seinni leiknum í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Sporting vann fyrri leikinn 1-0. Gareth Barry, Vincent Kompany og Pablo Zabaleta verða ekki með á móti portúgalska liðinu vegna meiðsla.
Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Segir Svía hafa efni á að tapa fyrir Íslandi Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira