Curiosity tekur sjálfsmyndir og þefar uppi metan Kjartan Hreinn Njálsson. skrifar 3. nóvember 2012 13:04 Sjálfsmynd Curiosity. MYND/NASA
Vitjeppinn Curiosity hefur ekki fundið leifar metans á plánetunni Mars. Niðurstöðurnar gefa til kynna að líf sé ekki að finna á rauðu plánetunni. Um árabil hafa vísindamenn bent á merki um metan í lofthjúpi Mars sem vísbendingu um tilvist örverulífs á plánetunni. Árið 2009 fundust nokkrir blettir á plánetunni þar sem metan virtist vera í töluverðu magni. Vegna geislunar frá útfjólubláu ljósi hverfur metanið á nokkur hundruð árum, því var talið ólíklegt að metanið væri leifar frá lífverum sem voru uppi fyrir milljónum ára. Eitt af meginverkefnum Curiosity, vitjeppa Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, var að rannsaka metan á Mars. Nú, þegar Curiosty hefur lokið fyrstu mælingum sínum, er ljóst að metan er í afar litlu mæli á rauðu plánetunni. Vísindamenn hafa þó bent á að myndum efnisins gæti verið árstíðabundin og frekari rannsókna sé þörf. Algengast er að metan verði til við líf, það er, við rotnun lífræns úrgangs, eða með eldvirkni. Metan er afar einfalt efnasamband og er gert úr einu kolefnisatómi og fjórum vetnisatómum. En á sama tíma og líkurnar á tilvist örverulífs á Mars dvína hafa aðrar rannsóknir Curiosity vakið upp fleiri og margþættari spurningar. Nýlegar athuganir gefa til kynna að nær helmingur þess koltvísýrings sem eitt sinn var í lofthjúpi Mars virðist hafa síast út í geiminn fyrir milljónum ára. Þetta þýðir að Mars var eitt sinn mun heitari pláneta en áður var talið og þannig líklegri til að hafa uppfyllt skilyrði lífs.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Sjá meira