Ferdinand-bræður óánægðir með enska sambandið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. október 2012 09:04 Anton og Rio Ferdinand. Nordic Photos / Getty Images
Um helgina verður átak gert í ensku úrvalsdeildinni gegn kynþáttafordómum. Jason Roberts og Ferdinand-bræðurnir, Rio og Anton, ætla hins vegar að sniðganga átakið. Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni munu um helgina klæðast sérstökum bolum með áletruninni „Kick It Out" en samkvæmt enskum fjölmiðlum munu þeir þrír ekki taka þátt í því. Þetta vilja þremenningarnir gera til að lýsa óánægju sinni með þá meðferð sem John Terry fékk fyrir að nota niðrandi orðbragð um Anton Ferdinand. Terry var dæmdur í fjögurra leikja bann og sektaður um tæpar 50 milljónir króna af enska sambandinu. Hann ákvað í gær að áfrýja ekki niðurstöðunni og baðst síðar afsökunar á orðum sínum. Chelsea greindi svo frá því í gær að félagið hefði einnig refsað Terry en vildi ekki greina frá því í hverju sú refsing hafi falist. Málið hefur dregist mjög á langin því atvikið átti sér stað í október í fyrra. Í sumar var Terry sýknaður fyrir breskum dómstólum en eftir að enska sambandið tók málið upp í lok sumars ákvað Terry að hætta að gefa kost á sér í enska landsliðið. Hann spilaði þó með Englendingum á EM í sumar. „Svo virðist sem að yfirvöld hafi ekki kjark í sér til að taka á þessu máli. Ef leikmennirnir gera það ekki - þá gerir það enginn," sagði Roberts við enska fjölmiðla en hann leikur með nýliðum Reading í ensku úrvalsdeildinni. Roberts sagði refsinguna sem Terry fékk hafa verið langt frá væntingum almennings og hann sagði að Chelsea yrði að taka fastar á málinu. „Til hvaða refsingar ætti vinnuveitandi að grípa ef svona orðbragð er notað á vinnustaðnum? Ég veit það ekki. En fjögurra leikja bann er fjarri lagi og það er nú undir Chelsea komið að gera hið rétta í stöðunni." Nú í vikunni voru kynþáttafordómar enn á ný í brennidepli í enskum fjölmiðlum vegna þeirra meðferðar sem Danny Rose, leikmaður enska U-21 landsliðsins, fékk í Serbíu.
Enski boltinn Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir Curtis Jones farinn til Inter Arsenal - Coventry City | Titilvörn Englandsmeistaranna hefst Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Sjá meira