Tony Pulis skilur ekki hvernig David Luiz slapp við rautt spjald Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. september 2012 11:30 John Terry kemur í veg fyrir að Jonathan Walters rjúki í David Luiz Mynd/AP
Tony Pulis, stjóri Stoke, var allt annað en sáttur með tæklingu Chelsea-mannsins David Luiz í lok leiks liðanna á Brúnni í ensku úrvalsdeildinni í gær. David Luiz fékk bara gult spjald fyrir sem flestum fannst vel sloppið. „Þetta er skelfileg tækling og maður býst við því að úrvalsdeildardómari geti tekið á þessu. Þetta var mjög, mjög slæm tækling," sagði Tony Pulis. David Luiz reyndi þarna tveggja fóta tæklingu á Jonathan Walters á 90.mínútu leiksins og Walters sjálfur varð mjög reiður og ætlaði í Brasilíumanninn. „Hann hefði auðveldlega geta fótbrotið hann ef hann hefði ekki forðað sér og þá hefði tímabilið verið búið hjá honum. Þetta var hryllileg tækling. Við verðum að beina sviðsljósinu að svona tæklingum til að dómararnir sjái hvaða leikmenn gera svona," sagði Tony Pulis. Pulis hrósaði reyndar líka Michael Oliver dómara fyrir að falla ekki fyrir leikaraskap Chelsea-manna en Branislav Ivanovic og Oscar reyndu báðir að fiska víti án þess að það væri mikil snerting. Það verður farið vel yfir þessi atriði hjá Guðmundi Benediktssyni í Sunnudagsmessunni á Stöð2 Sport 2 á eftir en hún hefst klukkan 17.00.
Mest lesið Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Íslenski boltinn Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Íslenski boltinn Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu Fótbolti Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Fótbolti Stór gulrót í bakgarðshlaupinu í Heiðmörk: „Alveg óskrifað blað“ Sport Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Fótbolti Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Formúla 1 Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Enski boltinn Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Fleiri fréttir Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Sjá meira