Brendan Rodgers: Af hverju fékk Jonny Evans þá ekki líka rautt spjald? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. september 2012 15:25 Jonjo Shelvey lét Sir Alex Ferguson heyra það þegar hann labbaði útaf vellinum. Mynd/AP
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hrósaði sínum mönnum þrátt fyrir 1-2 tap á móti Manchester United á Anfield í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool lék manni færri frá 39. mínútu og komst yfir í byrjun seinni hálfleiks en United jafnaði og skoraði síðan sigurmarkið úr vítaspyrnu níu mínútum fyrir leikslok. „Þetta var frábær dagur fyrir mína leikmenn og þetta var hetjuleg frammistaða hjá þeim," sagði Brendan Rodgers. „Liðið spilaði stórkostlega fyrstu 65 mínútur leiksins. Það er allt til alls í liðinu til að halda áfram í rétta átt en við þurfum bara að fara breyta góðri spilamennsku í stig. Ég er sannfærður um að við gerum það. Við fáum smá heppni með okkur og þá komumst við á skrið," sagði Rodgers. Liverpool lék manni færri frá 39. mínútu þegar Jonjo Shelvey fékk beint rautt spjald fyrir brot á Jonny Evans en þeir fóru þá báðir af krafti í tæklingu. „Það voru mjög mikil vonbrigði. Ef Jonjo Shelvey átti að fá rautt spjald þá átti Jonny Evans líka að fá rautt. Ég er afar svekktur að dómarinn sá bara þetta atvik frá einu sjónarhorni," sagði Rodgers. „Við vorum áfram betra liðið eftir að við urðum manni færri en við þurftum meiri hjálp og við fengum ekki neitt frá dómaranum. Luis Suarez átti að fá víti og það var fullt af atriðum sem féllu ekki með okkur," sagði Rodgers.
Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira