Mark Hughes pirraður út í umræðu um handbönd Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. september 2012 12:00 Nordicphotos/getty
Mark Hughes, knattspyrnustjóri QPR, segir handabönd í aðdraganda knattspyrnuleikja geta leitt til vanvirðingar en ekki virðingar eins og markmiðið sé. QPR tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. Ef frá er talin útkoma skýrslu um Hillsborough málið hefur fátt verið meira rætt meðal knattspyrnuáhugafólks á Bretlandseyjum en það hvort Anton Ferdinand og John Terry muni takast í hendur fyrir leikinn. „Þegar ég sá listann yfir líklegar spurningar sem ég þyrfti að svara á blaðamannfundinum í dag voru níu um handaböndin og ein um Hillsborough. Fáránlegt," sagði Hughes á umræddum blaðamannafundi vegna leiksins. Eins og frægt er orðið sakaði Ferdinand, miðvörður QPR, Terry, fyrirliða Chelsea, um kynþáttaníð í sinn garð í viðureign liðanna á Loftus Road á síðasta tímabili. Terry var sýknaður fyrir dómstólum í Englandi en enska knattspyrnusambandið á þó enn eftir að taka málið fyrir. QPR og Chelsea mættust tvívegis síðar á tímabilinu í fyrra. Í bæði skiptin var ákveðið að sleppa handaböndum fyrir leikina. „Aðdragandi þessa leiks hefur verið fáránlegur og allir hafa einbeitt sér að þessu eina atriði sem gerist áður en sjálfur leikurinn er flautaður á. Mér fannst það hjálpa til í þau skipti sem handaböndunum var sleppt á síðustu leiktíð. Allir tókust í hendur í leikslok og það var ekkert vandamál," sagði Hughes. Leikur QPR og Chelsea hefst á Sport 4 klukkan 14.
Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Sjá meira