Villas-Boas svarar gagnrýni Harry Redknapp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2012 15:30
Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham Hotspur, hefur svarað gagnrýni Harry Redknapp, forvera síns í starfinu en fyrir helgi lét Redknapp það frá sér að það rugli bara leikmenn í ríminu að afhenda þeim 70 síðna úttektir á leik liðsins og mótherjanna. Villas-Boas stýrði Tottenham til sigurs í fyrsta leiknum á tímabilinu í gær þegar liðið fór til Reading og vann sannfærandi 3-1 sigur. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham og átti stóran þátt í fyrsta marki liðsins. „Stjórar hafa allir mismundandi áherslur og aðferðir til að stýra sínum liðum. Þetta snýst á endanum miklu frekar um leikmennina sjálfa heldur en stjórann," sagði Andre Villas-Boas og hann var ánægður með leik sinna manna um helgina. „Ég er einstaklega ánægður með frammistöðuna. Leikmennirnir fórnuðu sér allir fyrir liðið, sýndu ábyrgð og héldu fullri einbeitingu. Þeir vissu að við höfum lagt mikið á okkur að undanförnu og að við áttum skilið að fá fyrsta sigurinn í hús," sagði Andre Villas-Boas. „Þeim tókst líka að losa sig við kvíðann og stressið og spiluðu af sjálfstrausti og einbeitingu sem skilaði sér í því að leikmönnunum tókst að nýta hæfileika sína og hafa gaman að því að spila fótbolta," sagði Villas-Boas. Það er hægt að sjá svipmyndir úr leik Reading og Tottenham með því að smella hér fyrir ofan.
Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Sjá meira