Liverpool þakklátt nágrannanum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. september 2012 22:45
Liverpool birti í kvöld yfirlýsingu á heimasíðu sinni þar sem grannliðinu Everton er þakkaður sá hlýhugur sem fórnarlömbum Hillsborough-slyssins var sýndur í kvöld. Í síðustu viku var gerð opinber rannsóknarskýrsla um þennan örlagaríka dag á Hillsborough-vellinum þar sem 96 stuðningsmenn Liverpool létu lífið. Everton ákvað af því tilefni að minnast fórnarlambanna sérstaklega fyrir leik liðsins gegn Newcastle í kvöld. Nöfn þeirra allra voru birt á risaskjá á meðan lag hljómsveitarinnar Hollies, „He Ain't Heavy, He's my Brother", hljómaði. Tveir ungir stuðningsmenn félaganna leiddust út á völlinn - stúlka sem var klædd í Everton búning með númerinu 9 og Liverpool-drengur í treyju númer 6. Þá voru boltakrakkar í leiknum í treyjum merktum númerinu 96. „Ég vil senda öllum starfsmönnum og stuðningsmönnum Everton mínar innilegustu þakkir fyrir þann stuðning sem þau sýndu fjölskyldum fórnarlambanna í kvöld," sagði Ian Ayre, framkvæmdarstjóri Liverpool. „Þessi tvö félög hafa ávallt verið miklir erkifjendur í leik en utan vallarins styðjum við hvort annað. Everton var til staðar fyrir okkur eftir slysið á sínum tíma og svo aftur nú eftir að niðurstöður rannsóknarnefndarinnar voru birtar." „Það er á stundum sem þessum sem fótboltaerjur gleymast. Þessi borg er einstök og ég held að stuðningsmenn beggja liða geta verið afar stolt af framferði sínu síðustu daga, vikur og þau ár sem liðin eru frá slysinu hörmulega."
Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Sjá meira