Villas-Boas: Við vorum ekki beittir í fyrri hálfleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. september 2012 20:30 Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham. Mynd/Nordic Photos/Getty
Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham, getur ekki leynt vonbrigðum sínum með byrjunina á tímabilinu en Tottenham hefur aðeins náð í tvö stig í fyrstu þremur umferðum ensku úrvalsdeildarinnar. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham í 1-1 jafntefli á móti Norwich í dag en íslenski landsliðsmaðurinn náði sér engan veginn á strik. Villas-Boas tók Gylfa Þór útaf eftir 52 mínútur og breytti úr 4-2-3-1 í 4-4-2 sem hafði góð áhrif á Spurs-liðið. Moussa Dembélé kom Tottenham yfir en annan heimaleikinn í röð fékk Tottenham á sig jöfnunarmark í lokin. „Við vorum ekki nógu beittir í fyrri hálfleiknum en bættum okkur mikið í seinni hálfleik. Við sköpuðum okkur meira og unnum vel fyrir markinu okkar," sagði Andre Villas-Boas við Sky Sports. „Í lokin varð síðan fast leikatriði okkur enn á ný að falli. Þessi byrjun er augljóslega vonbrigði fyrir alla en við verðum líka að hrósa Norwich," sagði Villas-Boas sem var síðan spurður út í pressuna á Tottenham-liðinu. „Pressan á liðinu er bara eðlileg en við verðum að bíða þolinmóðir eftir að hlutirnir fari að ganga betur hjá okkur. Það kemur vanalega þegar menn eru tilbúnir að leggja mikið á sig," sagði Villas-Boas sem hrósaði bandaríska markverðinum Brad Friedel fyrir leikinn. „Hann bjargaði okkur nokkrum sinnum í leiknum og kom í veg fyrir að við lentum 0-1 undir. Hann var frábær. Samkeppnin um sæti í liðinu hefur aukist en hann er aðalmarkvörður liðsins enda frábær markvörður sem á það skilið," sagði Villas-Boas sem keypti franska landsliðsmarkvörðinn Hugo Lloris frá Lyon í gær.
Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Enski boltinn Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Sjá meira