Eigandi Hoffenheim: Af hverju er Gylfi í Englandi? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. febrúar 2012 11:11 Gylfi fagnar marki sínu gegn West Brom um helgina. Nordic Photos / Getty Images
Dietmar Hopp, eigandi þýska úrvalsdeildarfélagsins Hoffenheim, segist ekki skilja af hverju Gylfi Þór Sigurðsson var lánaður til enska úrvalsdeildarfélagsins Swansea. Gylfi fékk lítið að spila í Þýskalandi í haust eftir að hafa misst af fyrstu vikunum vegna meiðsla. Holger Stanislawski, þjálfari liðsins, vildi greinilega lítið nota hann og á endanum ákvað Gylfi að grípa tækifærið og halda til Englands þegar honum stóð það til boða. Stanislawski hefur gagnrýnt Gylfa og segir hann ekki hafa vilja eða áhuga til að spila fyrir Hoffenheim. Hann setti einnig Chinedu Obasi í sama flokk en hann var lánaður til Schalke í síðasta mánuði. Þá var Vedad Ibisevic seldur til Stuttgart um svipað leyti. En Hopp segir að það hafi ekki komið honum á óvart að Obasi og Ibisevic fóru annað. „Það lá í loftinu strax í sumar og var brugðist við því," sagði Hopp en skildi ekki hvað Gylfi væri að gera í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann væri meðal bestu leikmanna síns liðs. Gylfi átti frábæran leik með Swansea um helgina þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp annað í 2-1 sigri á West Brom. Hoffenheim mætir B-deildarliðinu Greuter Fürth í fjórðungsúrslitum þýsku bikarkeppninnar á morgun og er talið líklegt að Stanislawski gæti misst starfið ef Hoffenheim tapar þeim leik. Liðið er í áttunda sæti úrvalsdeildarinnar og aðeins unnið einn af síðustu tíu leikjum sínum.
Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Handbolti Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Fótbolti Fleiri fréttir Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk „Hann var grátandi í hálfleik“ „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ Sjá meira