Enski boltinn

Einkaflugvél Redknapp bilaði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Harry Redknapp gat ekki verið á leik sinna manna í Tottenham gegn Liverpool í gær vegna þess að einkaflugvélin sem átti að flytja hann til Liverpool komst ekki af stað vegna bilana.

Redknapp stendur í ströngu þessa dagana en réttarhöld vegna meintra skattsvika hans standa nú yfir í suðurhluta Englands. Tæknilegir örðugleikar urðu til þess að flugvélin gat ekki tekið á loft.

„Ég held að það hafi alltaf áhrif þegar að stjórinn kemst ekki á leikinn, sérstaklega Harry," sagði Scott Parker, leikmaður Tottenham, eftir leikinn í gær. Honum lauk með markalausu jafntefli. „Hann hefur lykilhlutverki að gegna hjá okkur. Við hlökkum mikið til að fá hann til baka og halda baráttunni áfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×