West Ham vann öruggan 3-0 sigur á Fulham í fyrsta leik Carroll Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. september 2012 11:15 Mynd/Nordic Photos/Getty
Andy Carroll byrjaði vel með West Ham þegar liðið vann 3-0 heimasigur á Fulham í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Carroll átti stóran þátt í tveimur af þremur mörkum liðsins og West Ham fagnaði frábærum sigri en öll þrjú mörk liðsins komu í fyrri hálfleiknum. West Ham er með sex stig eftir þrjár umferðir en lærisveinar Sam Allardyce unnu einnig Aston Villa í fyrsta heimaleik sínum. Skelfileg frammistaða á móti Swansea um síðustu helgi er nú gleymd og grafin eftir flotta frammistöðu í dag enda var sigurinn í dag afar sannfærandi. Fulham vann Norwich 5-0 í fyrstu umferð en hefur síðan tapað þremur leikjum í röð, fyrir Manchester United og West Ham í deildinni og fyrir Sheffield Wednesday í deildarbikarnum. Kevin Nolan kom West Ham í 1-0 eftir aðeins 53 sekúndur. Andy Carroll vann skallaeinvígi fyrir framan teiginn og Ricardo Vaz Te gaf boltann á Nolan sem skoraði með góðu skoti. Þetta var fljótasta mark í ensku úrvalsdeildinni síðan í nóvember 2005. Andy Carroll var Fulham-vörninni erfiður og lagði einnig upp sláarskot Mohamed Diame á 10. mínútu. West Ham var miklu betra liðið og það hlaut að koma að því að þeir bættu við mörkum. Winston Reid kom West Ham í 2-0 á 29. mínútu þegar hann skallaði inn hornspyrnu Matthew Taylor af harðfylgni og Taylor skoraði þriðja markið sjálfur á 42. mínútu þegar boltinn hrökk til hans í teignum eftir að varnarmenn Fulham voru í baráttu við Carroll eftir aukaspyrnu. Dimitar Berbatov kom inn á sem varamaður hjá Fulham í hálfleik en Búlgaranum tókst ekki að laga stöðuna ekki frekar en öðrum leikmönnum Fulham. Sigur West Ham var öruggur og þeir komu heldur betur til baka eftir slakan leik á móti Swansea um síðustu helgi.
Mest lesið Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Fótbolti Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Fótbolti Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Íslenski boltinn Sjáðu rauða spjaldið og markið sem skaut Valsmönnum á toppinn Fótbolti Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Fótbolti Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Fótbolti Rashford mættur til Barcelona Fótbolti Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Fótbolti Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Fótbolti Fleiri fréttir Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Sjá meira