Dzeko og Tévez lögðu upp mark fyrir hvorn annan í sigri á QPR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. september 2012 16:00 Mynd/AFP
Edin Dzeko og Carlos Tévez tryggðu Manchester City í 3-1 heimasigur á Queens Park Rangers í kvöldleiknum í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City var með mikla yfirburði lengstum í þessum leik en nýtti aðeins eitt færi í fyrri hálfleik sem gaf QPR færi á að jafna leikinn í þeim seinni. Edin Dzeko kom Manchester City yfir aðeins einni mínútu og 38 sekúndum eftir að QPR jafnaði metin og Carlos Tévez, sem lagði upp markið fyrir Dzeko, skoraði síðan þriðja markið í uppbótartíma eftir undirbúning Dzeko. Carlos Tévez átti þátt í öllum þremur mörkum City-liðsins í leiknum því Yaya Touré skoraði fyrsta markið eftir að skot Tevez fór í varnarmann. Manchester City er fyrir vikið í 4. sæti deildarinnar með sjö stig af níu mögulegum en fyrir ofan meistarana eru Chelsea (9 stig og fullt hús), Swansea City og West Bromwich Albion. Mark Hughes hefur því enn ekki náð að stýra QPR til sigurs á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. QPR hefur ennfremur ekki unnið útileik síðan á móti Stoke í nóvember í fyrra en Heiðar Helguson skoraði tvö marka liðsins í þeim leik. Yaya Touré kom Manchester City í 1-0 á 16. mínútu þegar hann fylgdi á eftir skoti Carlos Tevez í varnarmann í kjöldfarið á hornspyrnu David Silva. Bobby Zamora jafnaði leikinn á 59. mínútu með skalla af marklínunni eftir að Joe Hart hafði varið skot frá Andy Johnson. City-liðið var ekki lengi að svara og komast aftur yfir en Edin Dzeko skoraði þá með skalla úr markteignum á 61. mínútu eftir sendingu frá Carlos Tévez. Það leið aðeins 1 mínúta og 38 sekúndur á milli markanna. Leikmenn Queens Park Rangers bitu frá sér á lokakafla leiksins og voru nokkrum sinnum nálægt því að jafna leikinn. Það var hinsvegar Carlos Tévez sem gerði út um leikinn þegar hann stýrði skoti Edin Dzeko í markið á þriðju mínútu í uppbótartíma.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Fótbolti Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira