Enski boltinn

Aguero segist ekki vera alvarlega meiddur

Argentínski framherjinn Sergio Aguero hjá Man. City greinir frá því á Twitter-síðu sinni að hann sé ekki eins alvarlega meiddur á hné og óttast var í fyrstu.

Aguero meiddist illa í 3-2 sigri City á Southampton og var jafnvel óttast að hann hefði slitið krossband.

"Rannsóknir sýna að það er enginn alvarlegur skaði í hnénu þó svo höggið á hnéð hafi verið mikið. Í dag munu læknarnir meta hvað ég þarf að hvílamikið," sagði Aguero og þakkaði fyrir góðar kveðjur i leiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×