Enski boltinn

Van Persie byrjar líklega á bekknum í kvöld

Lokaleikurinn í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram í kvöld þegar Everton tekur á móti Man. Utd. Robin van Persie mun líklega spila sinn fyrsta leik fyrir United í kvöld.

Það er þó ekki talið líklegt að Van Persie verði í byrjunarliðinu og Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur gefið það í skyn.

"Hann er ekki búinn að spila mikið og við munum skoða málið. Adrenalínið mun hjálpa honum ef hann byrjar. Þetta kemur allt í ljós," sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×