Enski boltinn

Fulham samþykkti tilboð Tottenham í Dembele

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Miðvallarleikamðurinn Moussa Dembele er á leið til Tottenham. Martin Jol, stjóri Fulham, greindi frá því í kvöld að félagið hefði tekið tilboði Tottenham í belgíska landsliðsmanninn.

Dembele var ekki í leikmannahópi Fulham sem tapaði óvænt fyrir Sheffield Wednesday í enska deildabikarnum í kvöld.

Hann hefur nú fengið leyfi til að ræða við Tottenham um kaup og kjör. Kaupverðið er ekki uppgefið en samkvæmt enskum fjölmiðlum er það upp á 10-15 milljónir punda.

Tottenham seldi á dögunum Luka Modric til Real Madrid fyrir um 33 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×