Ætlar Brendan Rodgers að gera vinstri bakvörð úr Downing? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2012 11:45 Stewart Downing hefur verið á bekknum hjá Brendan Rodgers í fyrstu leikjum tímabilsins. Mynd/Nordic Photos/Getty
Brendan Rodgers, nýr stjóri Liverpool, er tilbúinn að reyna nýja hluti til þess að ná eitthvað út úr enska landsliðsmanninum Stewart Downing sem fann sig engan veginn á sínu fyrsta tímabili á Anfield. Downing lék sem vinstri bakvörður í Evrópusigrinum á Hearts í síðustu viku og fékk hrós að launum frá Rodgers. Kenny Dalglish borgaði Aston Villa 20 milljónir punda fyrir Downing í fyrrasumar og hann var keyptur sem sóknarvængmaður. Downing náði hinsvegar ekki að skora og gaf bara tvær stoðsendingar í 36 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Stewart Downing hefur þrátt fyrir allt átt fast sæti í enska landsliðshópnum en það breytir ekki því að þessi 28 ára gamli leikmaður þarf að "læra" nýja stöðu ætli hann að komast í liðið hjá Brendan Rodgers. „Það er stór möguleiki að hann spili sem vinstri bakvörður. Nútíma bakverðir eins og [Jordi] Alba og [Ashley] Cole eru mjög sókndjarfir. Downing spilaði þessa stöðu með Middlesbrough á sínum tíma þegar liðið komst í úrslitaleik UEFA-bikarsins og þetta gæti létt af pressunni á honum," sagði Brendan Rodgers. José Enrique er fyrsti kostur í stöðu vinstri bakvarðar en Rodgers hefur trú á því að Stewart Downing geti leyst þessa stöðu vel. „Ég er í engum vafa um að hann sé nógu góður til þess en spurning er bara hvort að hann nái upp stöðugleika. Ég er ekki stjóri sem gefst upp á mínum leikmönnum og ég leita frekar að nýjum leiðum til að nota þá. Stewart á framtíð sem sóknarmaður en ég hef líka rætt hinn möguleikann við hann og hann er spenntur. Það skiptir mestu máli," sagði Brendan Rodgers.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Sjá meira