Enski boltinn

West Ham kaupir franskan landsliðsmann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alou Diarra í leik með Frökkum á EM í sumar.
Alou Diarra í leik með Frökkum á EM í sumar. Mynd/AFP
West Ham heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili en nýliðarnir gengu í dag á kaupum á franska landsliðsmiðjumanninum Alou Diarra frá Marseille. West Ham mun borga tvær milljónir punda fyrir kappann.

Alou Diarra er 31 árs gamall varnatengiliður sem var um tíma í þrjú ár hjá Liverpool (2002-2005) án þess að spila með aðalliðinu. Liverpool lánaði Diarra til Frakklands öll þrjú tímabilin hans þar.

Diarra spilaði bara í eitt ár hjá Marseille en var þar á undan í fjögur ár hjá Bordeaux. Hann spilaði alla fjóra leiki Frakka á Evrópumótinu í sumar og á að baki 44 A-landsleiki fyrir Frakka.

West Ham hefur áður keypt James Collins frá Aston Villa fyrir 2,5 milljónir punda og Maiga, framherja frá Malí, sem West Ham borgaði Sochaux 4,7 milljónir punda fyrir. Sam Allardyce, stjóri West Ham, er að reyna að styrkja liðið fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×