Enski boltinn

Ryo lánaður til Wigan

Arsenal er búið að lána japanska ungstirnið, Ryo Miyaichi, til Wigan út komandi leiktíð. Þessi 19 ára gamli vængmaður hefur ekki enn spilað deildarleik fyrir Arsenal síðan hann kom til félagsins árið 2010.

Hann var strax lánaður til Feyenoord í Hollandi en fékk atvinnuleyfi í Englandi síðasta sumar en komst ekki í hópinn hjá Arsenal og var því lánaður til Bolton.

Þar stóð hann sig vel og spurning hvað hann gerir hjá Roberto Martinez í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×