Wenger: Alex Song gæti líka verið á förum frá Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2012 14:15 Alex Song. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona hefur áhuga á Arsenal-miðjumanninum Alex Song og það er ekki að heyra annað en að Arsène Wenger, stjóri Arsenal, sé tilbúinn að selja annan lykilmann liðsins á stuttum tíma. Alex Song er 25 ára Kamerúnmaður sem hefur verið hjá Arsenal síðan að hann var 17 ára gamall. Robin van Persie er búinn að ganga frá fjögurra ára samningi við Manchester United og Thomas Vermaelen hefur tekið formlega við fyrirliðabandinu. Það hafa samt fáir spilað lengur fyrir Wenger í Arsenal-liðinu í dag en einmitt Song. Alex Song átti frábært tímabil í fyrra þar sem hann var með 11 stoðsendingar á félaga sína af miðjunni og ásamt Van Persie var hann einn af aðalástæðunum fyrir því að Arsenal spilar í Meistaradeildinni á þessari leiktíð. Arsène Wenger útilokaði það ekki á blaðamannafundi í dag að Song færi frá félaginu en eins var að heyra á franska stjóranum að fleiri leikmenn gætu verið á leiðinni til félagsins. „Þetta getur bæði gerst," sagði Wenger og bætti við: „Miðjan er sú staða á vellinum þar sem ég hef mesta frjálsræðið til að taka ákvarðanir," sagði Wenger en hann býst við að bæði Abou Diaby og Jack Wilshere komi sterkir inn eftir meiðsli. Nuri Sahin hefur líka verið orðaður við Arsenal og er líklegur kostur fari Song til Barcelona.
Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Sjá meira