Enski boltinn

Aron Einar og Heiðar í sigurliði Cardiff í fyrsta leik

Aron Einar.
Aron Einar.
Heiðar Helguson og Craig Bellamy léku í framlínu Cardiff City í kvöld og Aron Einar Gunnarsson var á miðjunni þegar enska B-deildin hófst.

Cardiff mætti Huddersfield á heimavelli og vann dramatískan 1-0 sigur með marki Mark Hudson í uppbótartíma. Heiðar Helguson átti skalla í slá í sínum fyrsta deildarleik með velska liðinu.

Cardiff fer því vel af stað í vetur og verður áhugavert að fylgjast með Íslendingaliðinu á þessu tímabili. Byrjunin minnir óneitanlega á fyrstu umferð deildarinnar í fyrra þegar Kenny Miller skoraði sigurmark Cardiff í viðbótartíma gegn West Ham á Upton Park.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×