Enski boltinn

Björn Bergmann fékk tuttugu mínútur í tapi Úlfanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik þegar Úlfarnir töpuðu 1-0 gegn Leeds á útivelli í 1. umferð Championship-deildarinnar á Englandi.

Luciano Becchio skoraði eina mark leiksins fyrir heimamenn á Elland Road strax á 17. mínútu. Björn Bergmann kom inn á fyrir Sylvan Ebanks-Blake á 69. mínútu.

Eggert Gunnþór Jónsson var ekki í leikmannahópi Úlfanna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×