Enski boltinn

Óskabyrjun dugði Chelsea

Mynd/AFP
Chelsea sigraði Wigan 2-0 í fyrr leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Það tók Chelsea aðeins sjö mínútur að gera út um leikinn og var nýi leikmaður liðsins, Eden Hazard, allt í öllu.

Branislav Ivanovic skoraði fyrra mark leiksins strax á 2. mínútu eftir sendingu frá Hazard og Frank Lampard bætti öðru marki við aðeins fimm mínútum síðar úr vítaspyrnu sem Hazard fékk þegar Ivan Ramis tók hann niður í teignum.

Þrátt fyrir að bæði lið fengu fjölda færa til að bæta við mörkum í leiknum þá vildi boltinn ekki inn og góður 2-0 sigur hjá Evrópumeisturum Chelsea staðreynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×