Af hverju er Van Persie númer 20 hjá Manchester United? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2012 11:30 Robin van Persie með treyju númer 20. Mynd/Nordic Photos/Getty
Hollendingurinn Robin van Persie spilar væntanlega sinn fyrsta leik með sínu nýja liði Manchester United á móti Everton á morgun en United borgaði Arsenal 24 milljónir punda fyrir markakóng ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Van Persie spilaði númer 10 hjá Arsenal en sú treyja er upptekin hjá United þar sem Wayne Rooney hefur spilað í henni frá 2007. Hollenski framherjinn varð því að finna sér nýtt númer og hann endaði á því að velja treyju númer 20 en af hverju? Ole Gunnar Solskjær er einn frægasti leikmaður Manchester United til að spila í þessari treyju en Van Persie er þó ekki að velja þetta númer vegna hrifningar sinnar af norska markaskoraranum. „Ég valdi númer 20 af því að ég er kominn hingað til þess að hjálpa Manchester United að vinna tuttugasta meistaratitilinn," sagði Robin van Persie í viðtali á heimasíðu Manchester United. Kaupin á Van Persie gætu á endanum kostað United 70 milljónir punda samkvæmt heimildum Daily Mirror því í viðbót við það að borga Arsenal 24 milljónir fyrir leikmanninn þá þarf United að borga honum sjálfum ofurlaun upp á 210 þúsund pund á viku auk annarra bónusa.
Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira