Gareth Bale um Charlie Adam: Tala ekki um fólk eins og hann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2012 09:30 Gareth Bale og Gylfi Þór Sigurðsson fagna í nótt. Mynd/Nordic Photos/Getty
Gareth Bale lék með Tottenham í sigri á New York Red Bulls í nótt þrátt fyrir að hafa meiðst eftir ljóta tæklingu Liverpool-mannsins Charlie Adam í leiknum á undan. Bale er ekki búinn að fyrirgefa Skotanum. Bale meiddist á ökkla eftir tæklingu Adam og var heppinn að meiðast ekki enn verr. Hann var mættur í slaginn í nótt og skoraði fyrra mark liðsins eftir stoðsendingu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Gylfi skoraði síðan sigurmarkið með glæsilegu skoti. „Ég tala ekki um fólk eins og hann. Hann veit sjálfur hvað hann gerði rangt og hans aðgerðir tala bara sínu máli," sagði Gareth Bale við Sky Sports. „Þetta er búið að vera rússíbanaferð og mikið skrifað um þetta í fjölmiðlum en ég er ekki að fylgjast með því. Ég er að einbeita mér að því að komast í form og vera klár í byrjun tímabilsins," sagði Bale. „Ég æfði í fyrsta sinn í morgun og er búin að vera kæla þetta allan sólarhringinn. Það var mikilvægt að ná að spila því það er lítið eftir að undirbúningstímabilinu," sagði Bale.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sjá meira