Enski boltinn

Veigarslaust lið Vålarenga hélt jöfnu gegn United

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Welbeck, Rooney og Valencia ræða málin í Noregi í dag.
Welbeck, Rooney og Valencia ræða málin í Noregi í dag. Nordicphotos/Getty
Manchester United tókst ekki að skora þrátt fyrir fjölda færa í æfingaleik sínum gegn Vålarenga í Noregi í dag.

Flestar skærstu stjörnu United tóku þátt í leiknum og óhætt er að segja að nóg hafi verið af færum. Besta færið fékk Danny Welbeck í fyrri hálfleik þegar hann skaut beint á markið af stuttu færi.

Michael Phelpan stýrði liði United í dag þar sem Sir Alex Ferguson átti ekki heimangengt. Nemaja Vidic spilaði í vörn United í fyrsta skipti í átta mánuði og sagðist í viðtali eftir leikinn líða vel og vera klár í slaginn.

Veigar Páll Gunnarsson var ekki í leikmannahópi norska liðsins frekar en fyrri daginn.

Næsti æfingaleikur United er gegn Barcelona í Gautaborg á miðvikudag. Ferguson verðru kominn til móts við liðs sitt fyrir þann leik en um 29 ár eru síðan Ferguson stýrði Aberdeen til sigurs í Evrópukeppni bikarhafa gegn Real Madrid á Ullevi.

Liðið leikur svo gegn Hannover 96 á laugardag sem verður síðasti æfingaleikurinn fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst aðra helgi. United sækir Everton heim í fyrstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×