Enski boltinn

Suarez með nýjan langtímasamning við Liverpool

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Suarez við undirritun samningsins.
Suarez við undirritun samningsins. Mynd/Heimasíða Liverpool
Úrúgvæinn Luis Suarez hefur gengið frá langtímasamningi við enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool. Frá þessu er greint á opinberri heimasíðu félagsins.

„Að skrifa undir nýjan samning við Liverpool er draumi líkast fyrir mig enda er ég yfir mig hrifinn af félaginu og borginni," segir Suarez á heimasíðu félagsins.

Suarez var samningsbundinn Liverpool til loka júní 2016 en ekki hefur verið gefið upp til hve langs tíma nýi samningurinn gildir.

„Ég vil þakka stuðningsmönnunum sérstaklega því þeir eru okkar tólfti maður. Stuðningsmenn Liverpool eru ótrúlegir," segir Suarez.

Úrúgvæinn hefur skorað 21 mark fyrir félagið í 52 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×