Enski boltinn

Bellamy á leið frá Liverpool | Vill komast til Cardiff

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur staðfest að Craig Bellamy vilji yfirgefa félagið. Bellamy hyggur á heimaslóðir í Cardiff.

„Við höfum átt í viðræðum við hann og Cardiff varðandi möguleika á að hann snúi aftur þangað," sagði Rodgers við Sky Sports. Rodgers segir málið ekki snúast um að Bellamy vilji komast frá Liverpool heldur langi hann til Cardiff.

„Hann er 33 ára og hefur ferðast um allt landið á meðan fjölskylda hans hefur búið annars staðar," segir Rodgers en fjölskylda Bellamy býr í Cardiff.

Bellamy, sem lék með landsliði Breta á Ólympíuleikunum, var á láni hjá velska liðinu keppnistímabilið 2010-2011 en hann var þá á mála hjá Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×