Enski boltinn

Aguero í aðalhlutverki í sigri City

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sergio Agüero skoraði eitt mark og lagði upp tvö í 3-1 sigri Manchester City á úrvalsliði Malasíu í æfingaleik í Kuala Lumpur í dag.

Agüero kom gestunum yfir með snyrtilegu marki í fyrri hálfleik. Hann lagði svo upp mörk fyrir landa sinn Carlos Tevez og Adam Johnson. Gestirnir minnkuðu muninn undir lokin.

Leikurinn var sá síðasti sem City spilar í Asíu þar sem liðið hefur verið í æfingaferð undanfarið. Liðið mætir Chelsea í leiknum um Samfélagsskjöldinn á Wembley 12. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×