Enski boltinn

Villas-Boas reiður Charlie Adam fyrir ljóta tæklingu á Gareth Bale

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gareth Bale fann vel fyrir tæklingunni.
Gareth Bale fann vel fyrir tæklingunni. Mynd/Nordic Photos/Getty
Gareth Bale meiddist í æfingaleik Tottenham og Liverpool í Bandaríkjunum í gær eftir að hafa lent í ljótri tæklingu frá Liverpool-manninum Charlie Adam. André Villas-Boas, stjóri Tottenham, var allt annað en sáttur með Skotann í viðtölum við fjölmiðla eftir leikinn.

Gareth Bale fékk á sig mikla gagnrýni í síðustu viku fyrir að draga sig út úr breska Ólympíuliðinu vegna meiðsla og spila síðan á fullu með Tottenham á undirbúningstímabilinu. Bale var heppinn að missa ekki af byrjun tímabilsins eftir meðferðina frá Adam í gær. Bale fékk slæma tæklingu frá Adam strax á 18. mínútu leiksins og haltraði um völlinn fram að hálfleik þegar honum var síðan skipt útaf.

„Þetta var mjög ljót tækling hjá Charlie," sagði André Villas-Boas. „Leikmaðurinn er sloppinn framhjá honum og hann kemur aftan frá og fer í ökklann hans Gareth. Ég vissi ekki að þeir ættu sögu að baki en ég veit það núna," sagði Villas-Boas.

„Þetta er erfitt mál því það gagnast okkur ekki að spila ellefu á móti tíu í æfingaleik. Charlie kom til mín og sagði eitthvað sem er allt gott og blessað en hann átti frekar að fara til leikmannsins og biðjast afsökunar. Gareth var heppinn að sleppa við ferð upp á sjúkrahús," sagði Villas-Boas.

„Hann verður samt í lagi sem betur fer. Ökklinn er samt teygður og hann finnur mikið fyrir honum. Ég efast ekkert um heiðarleika Charlie en þetta var mjög, mjög ljót tækling," sagði Villas-Boas en leikurinn sjálfur endaði með markalausu jafntefli.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×