Enski boltinn

Arsenal náði bara jafntefli á móti meisturunum frá Hong Kong

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thomas Eisfeld og Gervinho fafna marki þess fyrrnefnda.
Thomas Eisfeld og Gervinho fafna marki þess fyrrnefnda. Mynd/AFP
Arsenal gerði 2-2 jafntefli á móti meisturunum frá Hong Kong, KitChee, í æfingaleik í dag en þetta var síðasti leikur enska liðsins í æfingaferð sinni til Asíu. Theo Walcott og Thomas Eisfeld skoruðu mörk Arsenal og jöfnuðu metin í bæði skiptin.

Leikmenn KitChee skoruðu fyrsta mark leiksins á 10. mínútu eftir slæm varnarmistök frá Ignasi Miquel en Theo Walcott jafnaði um miðjan fyrri hálfleikinn eftir góðan undirbúning hjá Abou Diaby.

Hong Kong liðið var ekki lengi að komast yfir aftur þegar Dani Cancela fylgdi á eftir þegar Wojciech Szczesny varði vel frá Cheng Siu Waii.

Thomas Eisfeld tryggði Arsenal jafntefli undir lok leiksins þegar hann skoraði eftir sendingu frá Gervinho. Eisfeld var þarna að skora sitt annað mark á undirbúningstímabilinu.

Næsti leikur Arsenal er á móti Köln 12. ágúst næstkomandi en þar mun Lukas Podolski mæta sínum gömlu félögum en Arsenal keypti hann frá Köln í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×