Rosicky framlengir við Arsenal: Ég elska félagið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. mars 2012 18:30 Rosicky á ferðinni í sigurleiknum gegn AC Milan í síðustu viku. Nordic Photos / Getty
Tékkinn Tomas Rosicky hefur framlengt samning sinn við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrri samningur kappans hefði runnið út í vor. „Það er mikill heiður að skrifa undir nýjan samning við Arsenal. Ég elska félagið og klæðist treyju félagsins með stolti. Mér hefur liðið eins og heima hjá mér frá því ég gekk til liðs við félagið fyrir sex árum og gæti ekki verið ánægðari með að framlengja," sagði miðjumaðurinn léttleikandi. Segja má að Rosicky hafi unnið fyrir nýjum samningi með frammistöðu sinni að undanförnu. Hann, líkt og fleiri leikmenn Arsenal, olli vonbrigðum framan af móti. Líklega vonuðust fæstir stuðningsmenn Arsenal eftir því að samningurinn yrði framlengdur á þeim tímapunkti. Rosicky hefur hins vegar minnt á gamla tíma með frammistöðu sinni að undanförnu. Þar standa upp úr viðureignir Arsenal á heimavelli í sigrum á Tottenham og AC Milan þar sem hann var á skotskónum og spilaði einkar vel. „Ég tel okkur hafa hæfileikaríkann hóp af leikmönnum og með þennan stjóra er framtíðin björt. Það hefur alltaf verið draumur að vinna titla með Arsenal og ég ætla að leggja mikið á mig til að láta hann rætast," sagði Rosicky en lítil notkun hefur verið á lyklinum að verðlaunaskáp Arsenal undanfarin ár. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var hæstánægður með tíðindin. „Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi hæfileika Rosicky og mjög ánægður að hann hafi skuldbundið sig til lengri tíma við félagið," sagði Wenger. Enn hefur ekki verið gefið upp til hversu langs tíma nýi samningur Rosicky við Arsenal er. Rosicky verður væntanlega í liði Arsenal sem tekur á móti Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Arsenal hefur unnið síðustu fjóra leiki sína í deildinni og eru farnir að anda ofan í hálsmálið á erkifjendunum Tottenham sem sitja í fjórða sæti deildarinnar.
Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira