Wenger: Það þurfti eitthvað sérstakt til að vinna Newcastle Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2012 22:40 Leikmenn Arsenal fagna hér sigurmarkinu í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur náð að snúa við gengi liðsins og hafa Arsenal-menn nú unnið fimm deildarleiki í röð. Thomas Vermaelen skoraði sigurmarkið á móti Newcastle í kvöld á fjórðu mínútu í uppbótartíma en Arsenal hefur verið að tryggja sér sigra í blálokin á síðustu deildarleikjum sínum. „Ég efaðist aldrei um andann í liðinu mínu. Þetta var leikur þar sem bæði lið gáfu allt sitt. Newcastle er gott lið og það þurfti eitthvað sérstakt til að vinna þá í kvöld," sagði Arsene Wenger við BBC eftir leikinn. „Það sem skilaði okkur sigri í kvöld var sigurviljinn. Hann umfram öllu öðru skilaði okkur þremur stigum í lokin," sagði Wenger en þetta var í sjötta sinn á tímabilinu sem Arsenal vinnur deildarleik eftir að hafa lent undir. „Ég hélt aldrei að við myndum ekki ná því að vinna þennan leik. Ég sagði við aðstoðarmann minn í lokin að við þyrftum bara eina góða sókn til viðbótar og þá kæmi markið. Trúin á sigur var svo mikil," sagði Wenger.
Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Dagskráin í dag: Messan, meistarar Hauka, píla og NFL-veisla Sport Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira