Erlent

Þorpsbúar stela jarðgasi til að hita heimili sín

Þorpsbúarnir dæla jarðgasinu í risavaxnar blöðrur. Þeir bera síðan blöðrurnar heim og nota jarðgasið til að hita heimili sín.
Þorpsbúarnir dæla jarðgasinu í risavaxnar blöðrur. Þeir bera síðan blöðrurnar heim og nota jarðgasið til að hita heimili sín. mynd/Gizmodo
Vetrarmánuðirnir reynast fátækum þorpsbúum í Shandong-héraði Kína erfiðir. Þeir neyðast til að stela jarðgasi úr nálægri olíuvinnslustöð.

Þorpsbúarnir dæla jarðgasinu í risavaxnar blöðrur. Þeir bera síðan blöðrurnar heim og nota jarðgasið til að hita heimili sín. Blöðrurnar verða allt að sex metrar að lengd.

Starfsmenn við olíuvinnslustöðina hafa margsinnis bent fólkinu á þau augljósu ógn sem stafar af blöðrunum.

„Þetta er eins og að ganga með tímasprengju á bakinu," sagði einn starfsmaðurinn. „En þau hlusta ekki."

Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki.

Ein blaðra dugar í fimm daga samkvæmt þorpsbúum. „Þetta er hentug leið til að halda hita á fjölskyldunni. Við gerum þetta öll."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×