Chelsea tapaði | Öll úrslit dagsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. mars 2012 10:15 Petr Cech, Didier Drogba og Fernando Torres ganga niðurlútir af velli í dag. Nordic Photos / Getty Images
Ófarir Chelsea og knattspyrnustjórans Andre Villas-Boas halda áfram en liðið tapaði í dag fyrir West Brom, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni. Blackburn og QPR náðu sér í mikilvæg stig í dag og þá vann Stoke góðan 1-0 heimasigur á Norwich. Gylfi Þór Sigurðsson var aðalmaðurinn í 2-0 sigri Swansea á Wigan, eins og lesa má um hér. Manchester City jók forystu sína á toppi deildarinnar með 2-0 sigri á Bolton en nánar um það hér. Gareth McAuley skoraði sigurmark West Brom í dag og kom markið seint í leiknum. Hann stýrði misheppnuðu skoti Liam Ridgwell í netið en þá hafði Daniel Sturridge farið illa með tvö góð færi fyrir Chelsea. West Brom spilaði þó vel undir lok leiksins og uppskar góðan sigur. Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, hefur verið mikið í sviðsljósinu vegna stöðu sinnar en Chelsea hefur aðeins unnið einn sigur í síðustu sex deildarleikjum sínum. Liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 46 stig - 20 stigum á eftir toppliði City. Heiðar Helguson var ekki með QPR vegna meiðsla í dag en liðið lenti undir gegn Everton á heimavelli í dag. Bobby Zamora tryggði þó liðinu jafntefli og mikilvægt stig. Aðeins tvö stig skilja að neðstu fimm lið deildarinnar og nokkuð ljóst að þessi fimm lið munu berjast við falldrauginn allt til loka. QPR, Wolves og Blackburn eru öll með 22 stig og næsta lið fyrir ofan, Aston Villa, er með 30 stig. Bolton og Wigan töpuðu bæði í dag og eru á botninu með 20 stig hvort.Úrslit og markaskorarar dagsins:Manchester City - Bolton 2-0 1-0 Grétar Rafn Steinsson, sjálfsmark (22.)2-0 Mario Balotelli (68.) Wigan - Swansea 0-2 1-0 Gylfi Þór Sigurðsson (45.) 2-0 Gylfi Þór Sigurðsson (53.) WBA - Chelsea 1-0 1-0 Gareth McAuley (81.) QPR - Everton 1-1 0-1 Royston Drenthe (30.) 1-1 Bobby Zamora (35.) Blackburn - Aston Villa 1-1 0-1 Charles N'Zogbia (23.) 1-1 David Dunn (84.)Stoke - Norwich 1-0 1-0 Matthew Ethrington (71.)
Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira