Gylfi: Hefði verið gaman að ná þrennunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. mars 2012 20:02 Gylfi og félagar fagna í dag. Nordic Photos / Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson var hetja dagsins hjá nýliðum Swansea í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri á botnliði Wigan á útivelli. Vísir heyrði í Gylfa þegar hann var nýkominn upp í rútu Swansea-liðsins og fram undan var fjögurra og hálfs tíma akstur heim. „Jú, þetta var mjög gaman. Mikilvægt var að vinna leikinn til að sogast ekki niður í fallbaráttuna. Við vorum búnir að tapa tveimur í röð og því gott að vinna aftur," sagði Gylfi. „Það var líka gott að skora þessi mörk. Það eykur sjálfstraustið og hjálpar til. Fyrst og fremst er það bara gott að fá að spila reglulega og örugglega í fyrsta sinn síðan ég fór til Hoffenheim sem það gerist af einverju viti." Brendan Rodgers, stjóri Swansea, var þjálfari Reading þegar Gylfi fékk sitt fyrsta tækifæri þar og sló í gegn. Hann sótti svo Gylfa til Hoffenheim þegar hann fékk lítið að spila þar. „Það hjálpar manni mikið að fá fullvissu frá þjálfaranum að maður muni spila hvern leik sama hvað. Þá getur maður farið inn á völlinn og spilað sinn leik, án þess að vera að hugsa um hvort maður fari á bekkinn í næsta leik sama hvað maður gerir." „Ég er þakklátur þjálfaranum fyrir allt það sem hann hefur gert og það er vonandi að ég hafi náð að borga honum eitthvað til baka í dag með þessum mörkum," sagði Gylfi. Swansea hefur verið þekkt fyrir að spila skemmtilegan og sókndjarfan fótbolta. Það hentar Gylfa vel en hann segir að það hafi reynst nokkuð erfitt að þessu sinni. „Völlurinn var erfiður. Þetta er rúgbývöllur og hann er eiginlega handónýtur. Það var erfitt að halda boltanum niðri." Í stöðunni 2-0 fékk Nathan Dyer, félagi Gylfa, að líta beint rautt spjald fyrir tæklingu og var ákveðið að setja varnarmann inn á völlinn á kostnað Gylfa. „Við náðum að halda hreinu og vinna leikinn sem skiptir mestu. Það hefði auðvitað verið gaman að reyna að ná þrennunni en þetta var breyting sem þurfti að gera. Það var allt í lagi." „Varnarmaðurinn sem kom inn á stóð sig bara vel og því ekki hægt að kvarta undan neinu."
Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Handbolti Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Dagskráin í dag: Stjörnur eiga leik á HM, NFL og enski Sport Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Fleiri fréttir Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sjá meira