Southampton marði sigur á seinheppnu liði Leeds Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. mars 2012 11:07 Ricky Lambert. Nordic Photos / Getty Images
Southampton vann 1-0 útisigur á Leeds á Elland Road í síðdegisleiknum í Championship-deildinnií gær. Markahrókurinn Ricky Lambert skoraði eina mark leiksins í leik sem Leeds átti frá upphafi til enda. Neil Warnock, knattspyrnustjóri Leeds, stýrði liði sínu í fyrsta sinn á heimavelli og gat verið ánægður með sína menn þrátt fyrir úrslitin. Leikmenn Leeds sóttu frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu, sköpuðu sér fjölmörg færi en inn vildi boltinn ekki. Kelvin Davis, fyrirliði og markvörður Southampton, varði allt sem á markið kom en í tvígang björguðu marksúlurnar gestunum. Lærisveinar Nigel Adkins fögnuðu Davis vel í leikslok enda ljóst hver hafði séð fyrir stigunum þremur. Eina mark leiksins kom á 16. mínútu þegar Ricky Lambert skoraði úr eina færi liðsins í leiknum. Markið kom eftir fallega sókn þar sem Lambert tók boltann á lofti í teignum og setti hann óverjandi í netið. Lambert hefur farið á kostum undanfarin tvö ár með Southampton. Hann raðaði inn mörkunum í fyrra er liðið tryggði sér sæti í Championship deildinni. Hann heldur uppteknum hætti í ár og er markahæstur með 20 mörk. Danny Webber kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik í sínum fyrsta leik fyrir Leeds. Hann fékk þrjú góð færi en líkt og liðsfélögum hans tókst honum ekki að troða boltanum yfir línuna. Southampton hefur fjögur stig í forskot á toppi deildarinnar. West Ham, sem er í öðru sæti, mæti Cardiff í Wales á morgun. Leeds situr áfram í 10. sæti deildarinnar eftir tapið.
Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira