Manchester United ekki í vandræðum með Tottenham Stefán Árni Pálsson skrifar 4. mars 2012 14:13 Nordic Photos / Getty Images
Manchester United vann nokkuð öruggan 3-1 sigur á Tottenham en leikurinn fór fram á White Hart Lane í London. Ashley Young átti frábæran leik fyrir United og gerði tvö mörk. Rooney kom rauðu djöflunum á bragðið með fyrsta marki leiksins. Leikurinn hófst nokkuð rólega og liðin voru nokkuð varkár til að byrja með. Tottenham var samt sem áður meira með boltann og stjórnaði gangi leiksins. Leikmenn Manchester United áttu í erfileikum með að finna taktinn. Emmanuel Adebayor, leikmaður Tottenham, náði að koma boltanum í netið um miðjan fyrri hálfleik en markið var réttilega dæmt af þar sem Adebayor tók boltann með höndinni. Þetta kveikti greinilega á viðvörunarbjöllum Manchester United og liðinu óx ásmegin næstu mínúturnar. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins náðu gestirnir í United að skora fyrsta mark leiksins. Luis Nani tók frábæra hornspyrnu sem hafnaði á kollinum á Wayne Rooney og þaðan fór boltinn í netið. Staðan var því 1-0 fyrir ensku meistarana í hálfleik. Tottenham hóf síðari hálfleikinn betur rétt eins og þann fyrri en það virtist ekki skipta neinu máli. United komst í 2-0 þegar um korter var liðin af hálfleiknum. Luis Nani komst upp að endamörkum og gaf fína fyrirgjöf inn í teiginn sem endaði hjá Ashley Young. Hann þrumaði boltanum í netið. Ótrúlegur leikur í raun þar sem Tottenham hafði verið sterkari aðilinn alveg frá byrjun. Um tíu mínútum síðar var Young aftur á ferðinni þegar hann hamraði boltanum í netið fyrir utan teig - alveg óverjandi fyrir Brad Friedel í marki Tottenham. Jermaine Defoe náði að minnka muninn fyrir Tottenham rétt fyrir leikslok með fínu marki en það kom of seint. Manchester United eltir því Manchester City eins og skugginn en liðið er með 64 stig og er aðeins tveimur stigum á eftir City. Tottenham er sem fyrr í þriðja sætinu með 53 stig.
Mest lesið Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport HM-leikmaður í glannakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira