Tottenham lenti undir en komst örugglega áfram í enska bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2012 19:15 Mynd/AP
Tottenham er komið áfram í átta liða úrslit enska bikarsins eftir 3-1 sigur á C-deildarliðinu Stevenage á White Hart Lane í kvöld en þetta var endurtekinn leikur. Tottenham lenti undir í byrjun leiks en vann að lokum öruggan sigur sem færir liðinu heimaleik á móti Bolton í átta liða úrslitunum. Gareth Bale lagði upp öll þrjú mörk Tottenham í leiknum en Jermain Defoe skoraði tvö þeirra. Stevenage fékk draumabyrjun þegar Ryan Nelson felldi Joel Byrom inn í teignum og hinn síðarnefndi tók vítið sjálfur og kom Stevenage í 1-0 eftir aðeins fjórar mínútur. Ekki batnaði ástandið fyrir Tottenham þegar Michael Dawson fór meiddur af velli eftir aðeins níu mínútna leik. Jermain Defoe tókst hinsvegar að jafna metin í 1-1 á 26. mínútu eftir sendingu frá Gareth Bale. Gareth Bale fiskaði víti á 55. mínútu sem Emmanuel Adebayor skoraði af öryggi úr og Jermain Defoe innsiglaði síðan sigurinn með því að skora þriðja markið á 75. mínútu eftir sendingu frá Bale.
Mest lesið Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira