Enska landsliðið var í miklu stuði þegar Holland kom síðast á Wembley Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. febrúar 2012 16:45
England og Holland mætast í kvöld í vináttulandsleik á Wembley en það eru að verða liðin sextán ár síðan að hollenska liðið spilaði síðast við Englendinga á Wembley. Enska liðið var þá í miklu stuði og vann 4-1 sigur á því hollenska í lokaleik liðanna í riðlakeppni EM 1996 sem fram fór á Englandi. Englendingar tryggðu sér efsta sætið í riðlinum með þessum sigri en liðið mætti síðan Spáni í átta liða úrslitunum. Hollendingar duttu út fyrir Frökkum í vítakeppni í 8 liða úrslitum en verðandi Evrópumeistarar Þjóðverja unnu Englendinga í vítakeppni í undanúrslitunum. Enska liðið spilaði frábærlega í þessum leik á móti Hollendingum ekki síst á ellefu mínútna kafla í upphafi seinni hálfleiks þegar liðið skoraði þrjú mörk. Alan Shearer og Teddy Sheringham skoruðu báðir tvö mörk í leiknum en Patrick Kluivert minnkaði muninn í lokin. Alan Shearer skoraði fyrsta markið á 23. mínútu úr víti eftir að Paul Ince var felldur. Teddy Sheringham skoraði annað markið með skalla á 51. mínútu eftir hornspyrnu Paul Gascoigne. Shearer bætti sínu öðru marki við á 57. mínútu eftir undirbúning Gascoigne og Sheringham en þar var síðan Sheringham sem skoraði síðan fjórða markið á 62. mínútu þegar hann fylgdi eftir þegar Edwin van der Sar varði frá Darren Anderton. Það er hægt að sjá skemmtilegar svipmyndir frá leiknum með því að smella hér fyrir ofan en það má síðan sjá leikinn í kvöld í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 19.50.
Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira