Wenger: Henry fer frá Arsenal 16. febrúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2012 13:45 Thierry Henry. Mynd/Nordic Photos/Getty
Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry mun fara frá Arsenal eftir fyrri leikinn á móti AC Milan í Meistaradeildinni og á því aðeins eftir að spila tvo leiki með liðinu. Arsene Wenger, stjóri Arsenal og landi Henry, staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag. Henry er í láni frá bandaríska liðinu New York Red Bulls og er búinn að vera í sex vikur hjá Arsenal. Hann skrifaði undir lánsamning 6. janúar og hefur skorað 2 mörk í 5 leikjum með liðinu þar á meðal sigurmark í fyrsta leik á móti Leeds. MLS-tímabilið hefst 10. mars næstkomandi og mun Thierry Henry þá spila með Guðlaugi Victori Pálssyni hjá New York Red Bulls liðinu. Hann verður með í útileik á móti Sunderland um helgina og síðasti leikurinn verður síðan Meistaradeildarleikur í Mílanóborg í næstu viku. „Ég hefði fagnað því að halda Thierry í tvær vikur í viðbót en hann verður að fara til baka. Það er bara sanngjarnt gagnvart New York," sagði Arsene Wenger en einhverjir voru að vonast til þess að Henry gæti spilað bikarleik á móti Sunderland 18. febrúar og deildarleik á móti nágrönnunum í Tottenham 26. febrúar. Svo verður ekki.
Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Sjá meira